no
Knjige
Ýmsir Höfundar

Eldsvoðar

Á fjögurra ára tímabili urðu fjórir eldsvoðar í þorpi úti á landi sem sami maður var valdur af. Aldrei féll grunur á hann fyrr en eftir síðasta eldsvoðann og má segja að hann hafi komið upp um sig sjálfur. Hér á eftir verður hann kallaður X. Þegar upp komst að maðurinn hafði kveikt í þegar síðasti bruninn átti sér stað var farið að ganga á hann með hina brunana og að lokum játaði hann að eiga þar hlut að máli líka. Mikið tjón varð í þessum eldsvoðum en í a.m.k. einu tilfelli leit út fyrir að hann hefði bjargað einu fyrirtæki á staðnum frá stjórtjóni með vasklegri framgöngu áður en slökkviliðið kom á staðinn og fékk hann mikla viðurkenningu fyrir.

Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást— æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
17 štampanih stranica
Prvi put objavljeno
2020
Godina izdavanja
2020
Izdavač
Saga Egmont
Da li već pročitali? Kakvo je vaše mišljenje?
👍👎
fb2epub
Prevucite i otpustite datoteke (ne više od 5 odjednom)